Geislar bjóða upp á geislaskurð (laser) í tré, plast, pappír, leður, textíl o.fl.
Hafðu samband og fáðu tilboð í verkið. Athugið að einungis er hægt að skera eftir "línu skrám" (vector format) eins og Adobe Illustrator, Autocad og Coreldraw (dxf, ai, pdf, cdr o.fl.). Ef ekki er til tölvuteikning af vöruhugmynd getum við teiknað hlutinn upp fyrir þig gegn vægu gjaldi.
Við tilboðsgerðina er miðað við tímann sem tekur að skera viðkomandi hlut út. Þetta getur verið mjög mismunandi eftir efni og þykkt.
Tækjakostur félagsins er 150W KERN geislaskurðarvél.