Oddný er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er mikill náttúruunnandi sem lærði að meta náttúru Íslands í ferðalögum fjölskyldunnar í æsku og þegar hún stundaði staðarnám á Bifröst árin 1995-1998, þaðan sem hún útskrifaðist með BSc gráðu í viðskiptafræði.
Hún kom víða við á námsárum sínum, en frá 1998-2008 starfaði hún hjá stuðnings- og stoðtækjafyrirtækinu Össuri hf.
Fyrri fimm árin starfaði hún í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi, fyrst sem vörustjóri (Global Product Manager) og síðar sem deildarstjóri vörustjórnunar- og tæknisviðs (Director of Global Product & Technical Management).
Frá 2003-2008 starfaði hún hjá dótturfélaginu Össur Americas í Orange County í Kaliforníu, fyrst sem framkvæmdastjóri markaðs- og almannatengsla (Vice President of Marketing and Public Relations) og síðar sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar (Vice President of Business Development / M&A) fyrir Norður Ameríku.
Árið 2008 ákvað hún að skipta um starfsvettvang og hóf meistarnám í alþjóðaviðskiptum frá Bifröst, í fjarnámi frá Kaliforníu. Samhliða því sjálfmenntaði hún sig í lífrænum og sjálfbærum ræktunaraðferðum, heilbrigðu mataræði og lífsstíl, neytenda-, dýra- og umhverfisvernd.
Frá 2010-2016 starfaði hún sem ráðgjafi, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri fyrirtækja í lífræna og heilsugeiranum í eigu Auðar Capital, síðar Virðingar, nú Kviku; lengst af, eða frá desember 2011 sem framkvæmdastjóri heildsölunnar Yggdrasill sem sérhæfði sig í innflutningi, markaðssetningu og dreifingu á lífrænum vörum og heilsuvörum, þ.m.t. Himneskri Hollustu (nú MUNA) og NOW fæðubótarefnunum.
Samhliða því var hún ötull talsmaður lífræns og heilbrigðs lífsstíls, neytenda-, dýra- og umhverfisverndar. Hún var hvatamaður að stofnun Samtaka lífrænna neytenda og sat í starfshópum Neytendasamtakanna á sviði matvæla og landbúnaðar frá 2011-2017.
Hún hefur setið í stjórn Vottunarstofunnar Tún (2014-2020), Landbúnaðarklasans (2018-2020), Hampfélagsins frá 2019 og Icelandic Lamb frá 2021. Vorið 2022 var hún kjörin heimastjórnarfulltrúi á Djúpavogi (fyrir gamla Djúpavogshrepp) eftir sameiningu fjögurra sveitarfélaga undir nafninu Múlaþing.
Frá 2014 hefur hún sinnt sölu- og markaðs- og fjármálum fyrirtækis þeirra hjóna, Geislar Gautavík (áður Geislar hönnunarhús), samhliða öðrum störfum, en hönnunarvörur fyrirtækisins fást í um 50 verslunum um land allt og hafa selst í tugþúsundum eintaka frá því fyrirtækið var stofnað. Matvörurnar (hampte/hampblóm) fást í matvöru- og sérverslunum hringinn í kringum landið, en lambakjöt, landnámshænuegg og hampsmyrsl selja þau eingöngu beint.
Frá því að Yggdrasill var selt á vordögum 2016 hefur hún starfað sem sjálfstæður ráðgjafi.
Sem slíkur hefur hún sinnt ráðgjöf og unnið fjölda verkefna fyrir fyrirtæki, stofnanir og samtök eins og Krónuna (apr 2016 - nóv 2017) sem ráðgjafi og verkefnastjóri í umhverfis-, samfélags- og lýðheilsumálum (bls. 24), Íslandsstofu (okt 2017 - maí 2018) sem verkefnastjóri greiningar á vottunum og upprunamerkingum matvæla, Matarauð Íslands (jan 2018 - nóv 2019) sem verkefnastjóri greiningar á starfsemi Beint frá býli og íþyngjandi regluverki, koma á fót REKO hringjum hér á landi og greina þörf á og undirbúa stofnun regnhlífasamtaka smáframleiðenda matvæla, Icelandic Lamb, Mjólkursamsöluna, Bændasamtökin og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (apr 2019 - sept 2020) sem formaður samráðshóps um betri merkingar matvæla, skipuð af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Frá 2020 hefur hún haldið námskeið sitt Matarfrumkvöðullinn í Hallormsstaðaskóla og Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún hefur jafnframt skrifað fjölda greina og haldið erindi víða um land.
Frá desember 2019 hefur hún sinnt starfi framkvæmdastjóra Samtaka smáframleiðenda matvæla (SSFM) og frá 2022 framkvæmdastjóra Beint frá býli eftir að það varð aðildarfélag SSFM í apríl það ár.
Vorið 2018 keyptu þau hjónin lögbýlið Gautavík í Berufirði í Múlaþingi. Þau fluttu þangað með börnin og fyrirtækið það sumar og sinna þar sínum störfum. Sumarið 2021 opnuðu þau býlið formlega fyrir almenningi og buðu upp á leiðsögn, fyrst og fremst tengda inni- og útiræktun á iðnaðarhampi og úrvinnslu vara úr honum og ýmsa afþreyingu ásamt verslun með eigin handverki og matvælum til að neyta á staðnum.
Á býlinu stunda þau blandaðan smábúskap; halda sauðfé, hesta, endur, hænur og silunga í tengslum við samrækt (aquaponics), stunda matjurtaræktun og tilraunaræktun á iðnaðarhampi og úrvinnslu vara úr honum. Í það tilraunaverkefni hafa þau fengið tvo styrki; frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (jan 2020) og Uppbyggingasjóði Austurlands (feb 2020).
Frá 2019 hafa þau hjónin unnið ötullega að vitundarvakningaverkefni sínu um notagildi iðnaðarhamps og möguleikum hans til að stórauka sjálfbærni á fjölmörgum sviðum sem varð til þess að regluverkinu var breytt, fyrst með reglugerðarbreytingu vorið 2020 og svo með breytingu á lögum vorið 2021. Haustið 2020 hófu þau sölu beint frá býli á Finola hamptei úr eigin ræktun. Haustið 2021 var því dreift í ríflega 40 matvöruverslanir um land allt en fæst í dag í ríflega 20 enda var uppskera haustsins 2022 mun minni en 2021. Hampsmyrslið er eingöngu selt beint frá býli.