Finola hampte, 60 tsk / bollar

Prenta
Finola Hemp Tea, Cannabis Sativa
927205c.jpg927205c.jpg
Söluverð3600 kr
Afsláttur
Upphæð skatts
Verð / kg:
Lýsing

40g pokarnir (60 tsk / bollar) fást eingöngu beint frá okkur - sendum frítt um land allt.

20g pokarnir (30 tsk / bollar) fást í matvöruverslunum hringinn í kringum landið. Sjá upplýsingar undir 20g pokunum.

- - - - - - - -

Fræin eru á sáðvörulista Evrópusambandsins og vottuð til að innihalda 3-5% CBD en innan við 0,2% THC - sem er snefilmagn.

Við ræktunina voru engin eiturefni eða kemísk áburðarefni notuð, eingöngu húsdýraáburður og rigningarvatn.

Við handtínum blómin og laufin næst þeim af hampplöntunum, þurrkum þau í sérstökum þurrkgrindum og svo netapokum við ákveðið hita- og rakastig, handmölum og handpökkum í vandaða "ziplock" poka í vottuðu framleiðslurými.

Við þurrkunina rýrna þau um ríflega 90% í þyngd og þegar möluð verður grófa efnið eftir í sigtinu, þ.m.t. fræin sem sum blómin voru byrjuð að mynda í lok uppskerutímans því þau innihalda kannabínóða aðeins í snefilmagni og viljum við þau því ekki hafa þau með í teinu.

Teið er milt og gott á bragðið eitt og sér, en má bragðbæta, t.d. með hunangi.

Við mælum með að út í teið sé sett 1/2-1 tsk af olíu því hinir heilsusamlegu kannbínóðar (e: cannabinoids) á hampinum eru fituleysanlegirBragðlaus kókosolía og avocado-olía henta vel þar sem þær hafa lágmarks áhrif á bragðið.

Teið má einnig nota sem kryddjurtir í matvæli sem eru hituð/steikt og innihalda olíu (nauðsynlegt til að virkja kannabínóðana). Bragðið er milt svo það hefur nánast engin áhrif á bragðið af mætvælunum.

Bendum áhugasömum á Facebook hópinn okkar:
Geislar Gautavík - opið býli - hampur, húsdýr, handverk/snarl, golf o.fl.

 

Flatur pakki

Geislar Gautavík ehf.

Gautavík, Berufirði
766 Djúpavogi
Sími: 777 6190 (Pálmi)
Sími: 869 7411 (Oddný)

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kt. 680212-1630
Reikn.nr. 0111-26-290212